Framkvæmdum við KR-heimilið í Frostaskjóli lýkur í haust og þá opnar húsið dyr sínar fyrir iðkendum allra deilda félagsins.
Í nýju aðstöðunni eru betri búningsklefar, stærri þreksalur og félagsaðstaða þar sem iðkendur, foreldrar og eldri KR-ingar geta hist.
Opnunarhátíð verður auglýst hér á vefnum þegar dagsetning liggur fyrir.