Það var mikið um dýrðir þegar meistaraflokkur lyfti bikarnum að viðstöddu troðfullu húsi.
Leikurinn var í járnum allt fram á lokamínúturnar en liðið hélt haus og innsiglaði sigurinn með tveimur mörkum í röð.
Stuðningsmenn tóku á móti liðinu í Frostaskjóli og fagnað var langt fram á kvöld.